![Íslandsmet Irma Gunnarsdóttir sló 27 ára gamalt Íslandsmet í þrístökki á
Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum á Akureyri um helgina.](https://c.arvakur.is/m2/E8HsoAqIcNYRzCQZlfg27QzA2DQ=/fit-in/1024x0/myndir/gagnasafn/2024/07/01/j1-22b_1356354.jpg)
Meistaramót Íslands
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Irma Gunnarsdóttir úr FH sló 27 ára gamalt Íslandsmet í þrístökki á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum á Akureyri í gær. Irma stökk 13,61 metra og sló því met Sigríðar Önnu Guðjónsdóttur frá árinu 1997, sem var 13,18 metrar.
Erna Sóley Gunnarsdóttir sló eigið Íslandsmet í kúluvarpi í gær er hún kastaði lengst 17,91 metra. Irma var önnur með kast upp á 13,52 metra.
Títtnefnd Irma bar sigur úr býtum í langstökki á laugardag er hún stökk einum sentimetra lengra en Birna Kristín Kristjánsdóttir úr Breiðabliki, sem hafnaði í öðru sæti. Lengsta stökk Irmu var 6,32 metrar en Birnu Kristínar 6,31.
FH-ingurinn Daníel Ingi Egilsson sigraði í langstökki karla á laugardag en hans lengsta stökk var 7,28 metrar.
Helga Þóra Sigurjónsdóttir jafnaði þá mótsmet í
...