Nú stendur yfir tilraunaverkefni við Straumsvík og á iðnaðarsvæðinu á Völlunum við Hafnarfjörð sem ber nafnið „DemoUpCARMA” undir forystu ETH Zürich í samstarfi við Carbfix. Tilraunaverkefnið felst í því að flytja til landsins 50 stk. 20 feta gámatanka með fljótandi lífrænu koldíoxíði (CO 2 ). Hver tankur inniheldur 20 tonn af lífrænu CO 2 , sem framleitt er með gerjun lífmassa.
Rétt eins og sýra brennir húð brennir kolsýrða Carbfix-vatnið sig í berglög og þvingar þau til að losa málma á borð við kalsíum, magnesíum og járn. Með tímanum eiga þessir málmar, uppleystir í koldíoxíðinu, að mynda karbónatsteindir sem fylla upp í holótt basaltið.
Þessum CO
2
-mengaða vökva á að dæla niður á Völlunum í Hafnarfirði. Á kynningarfundi um stækkun hafnarinnar í Straumsvík upplýsti Carbfix að val á staðsetningu verksmiðjunnar