Orkustofnun hefur gefið út virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá og er stefnt að því að virkjunin taki til starfa fyrir árslok 2028. Í kjölfar leyfisins sækir Landsvirkjun um framkvæmdaleyfi til bæði Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps, en mannvirki tengd virkjuninni verða í báðum sveitarfélögunum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsvirkjun. Þar segir að Orkustofnun hafi jafnframt gefið út leyfi til stækkunar Sigölduvirkjunar úr 150 MW í 215 MW með því að bæta fjórðu vélinni við. Þar sækir Landsvirkjun um framkvæmdaleyfi til Ásahrepps og Rangárþings ytra.
„Stækkun Sigölduvirkjunar eykur afl og sveigjanleika í raforkukerfinu. Með aflaukningunni eykst orkuvinnslugeta stöðvarinnar aðeins lítillega, nema til komi meira rennsli með aukinni bráðnun jökla eða aukinni úrkomu,“ segir í tilkynningunni og er þá tekið fram að áætlað sé að stækkun verði lokið í lok
...