Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur undirritað stjórnunar- og verndaráætlun fyrir rjúpu. Þetta er í fyrsta skipti sem slík áætlun er gefin út fyrir dýrastofn á Íslandi og segir ráðherrann að með undirrituninni sé brotið blað í veiðistjórnun fyrir rjúpu.
Í tilkynningu frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu segir að áætlunin feli í sér nýtt kerfi veiðistjórnunar þar sem landinu er skipt í sex hluta og veiðistjórnunin er svæðisbundin. Einnig hafi verið þróuð ný stofnlíkön sem muni reikna út ákjósanlega lengd veiðitímabils á hverju svæði. Þá sé áætlunin mikilvægur liður í að stuðla að því að veiðar verði sjálfbærar og að rjúpnastofninn haldi sínu hlutverki sem lykiltegund í sínu vistkerfi.