Hólmbert Aron Friðjónsson fór vel af stað með sínu nýja liði, Preussen Münster, í þýsku B-deildinni í knattspyrnu í gær. Hann kom inn á sem varamaður í sínum fyrsta leik gegn Paderborn og skoraði aðeins fimm mínútum síðar. Þá jafnaði hann, 2:2, en leikurinn endaði 3:3. Hólmbert var í liði Holstein Kiel sem vann sér sæti í efstu deild Þýskalands í vor en gekk á dögunum til liðs við nýliðana í Münster sem eru með tvö stig eftir fyrstu fimm leikina.