Aðalmeðferð í máli Alberts Guðmundssonar knattspyrnumanns lauk í gær og er málið dómtekið. Þetta staðfestu Arnþrúður Þórarinsdóttir saksóknari og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögfræðingur Alberts í samtali við mbl.is í gær. Dómari hefur fjórar vikur til að kveða upp dóm í málinu. Þinghald fór fram fyrir luktum dyrum til að verja friðhelgi brotaþola. Arnþrúður gat ekki gefið upp hversu þunga refsingu ákæruvaldið fer fram á. Albert er ákærður fyrir að hafa nauðgað konu á þrítugsaldri á síðasta ári.