Joe Biden
Joe Biden

Joe Biden Bandaríkjaforseti hyggst ekki taka endanlega ákvörðun um hvort Úkraínumenn eigi að fá að beita langdrægum eldflaugum af vestrænni gerð innan landamæra Rússlands fyrr en í lok septembermánaðar að sögn embættismanna í Hvíta húsinu.

Biden fundaði með breska forsætisráðherranum, Keir Starmer, á föstudagskvöldið vegna málsins, en breskir fjölmiðlar segja Starmer styðja að Úkraínumenn megi beita breskum Storm Shadow-eldflaugum innan Rússlands.

Vill Biden fyrst ráðfæra sig við Volodimír Selenskí Úkraínuforseta, en Selenskí mun heimsækja Bandaríkin í lok mánaðarins vegna allsherjarþings SÞ.