Andrés Magnússon

andres@mbl.is

Þingstörfin eru óðum að taka á sig mynd og fastanefndir teknar að funda. Þar hafa ýmsar mannabreytingar orðið, sem vert er að gefa gaum.

Birgir Ármannsson forseti Alþingis las í liðinni viku upp bréf frá þremur þingflokkum um mannabreytingar í nefndum þingsins. Þar kom fram mikil hringekja þingmanna Pírata milli nefnda, en fleiri horfðu þó til breytinga á vegum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks.

...