Fram lenti ekki í vandræðum með nýliða Fjölnis og vann 43:28 þegar liðin áttust við í 2. umferð úrvalsdeildar karla í handknattleik í Úlfarsárdal á laugardag. Fram er í níunda sæti með tvö stig og Fjölnir er á botninum án stiga. Ívar L. Styrmisson var atkvæðamestur hjá Fram með átta mörk. Reynir Þ. Stefánsson, Eiður R. Valsson, Rúnar Kárason og Þorsteinn G. Hjálmarsson skoruðu sex mörk hver. Alex M. Oddnýjarson skoraði sjö mörk fyrir Fjölni.