50 ára Sigurlín er fædd og uppalin á Selfossi og er búsett þar. Hún hefur verið starfandi íþróttakennari í 26 ár en söðlaði um í vetur og er orðin íþróttafræðingur á Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði. Áhugamálin eru íþróttir og útivist.
Fjölskylda Eiginmaður Sigurlínar er Hrafnkell Björnsson, f. 1969. Börn þeirra eru Alexander, f. 2001, og Díana, f. 2008. Foreldrar Sigurlínar eru hjónin Guðbjörg Haraldsdóttir, f. 1951, og Garðar Gestsson, f. 1946, búsett á Selfossi.