Ragnhildur Bjarkadóttir er klínískur sálfræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd. Ragnhildur er einn eigenda og stofnenda Auðnast sem var stofnað í þeim tilgangi að þjónusta atvinnulífið um allt er varðar heilsu og félagslegt öryggi starfsfólks. Auðnast er einnig með klíník þar sem einstaklingar geta fengið handleiðslu, ráðgjöf og meðferðir.