30 ára Jökull ólst upp í Seljahverfinu í Reykjavík en býr í Vestmannaeyjum. Hann er húsasmiður að mennt frá FB og starfar hjá Steina og Olla byggingaverktökum. Áhugamálin eru fótbolti, körfubolti og golf.


Fjölskylda Eiginkona Jökuls er Lovísa Jóhannsdóttir, f. 1991, talmeinafræðingur. Sonur þeirra er Daníel Andri og svo er dama á leiðinni í október. Foreldrar ­Jökuls eru Guðrún Hallsteinsdóttir, f. 1971, kennari, býr í Mosfellsbæ, og Sigurður Örn Jónsson, f. 1970, verkfræðingur, býr í Skuggahverfinu í Reykjavík.