Kvikmyndin Snerting eftir Baltasar Kormák hefur verið valin sem framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna á næsta ári, að því er fram kemur í tilkynningu frá Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni, ÍKSA. Þann 17. desember verður stuttlisti erlendra kvikmynda fyrir Óskarsverðlaunin kynntur en tilnefningar til verðlaunanna sjálfra verða kynntar 17. janúar. Snerting er einnig tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs en þau verða veitt 22. október.