Þegar Jón Daði Böðvarsson var seldur frá Wolves til Reading sumarið 2017 markaði það tímamót sem ekki hafa farið hátt hingað til. Félagaskipti hans voru þau fyrstu sem gengið var frá í gegnum nýtt kerfi, TransferRoom, sem nú er orðið mjög útbreitt. Eigandi þess, Jonas Ankersen, sagði Morgunblaðinu frá þeim tímamótum sem skipti Jóns Daða mörkuðu og hvernig útbreiðsla kerfisins er orðin í dag, en m.a. eru fjögur íslensk félög aðilar að TransferRoom. » 27