Ryan Wesley Routh
Ryan Wesley Routh

Saksóknarar í Flórída ákærðu í gær hinn 58 ára gamla Ryan Wesley Routh fyrir tvö brot á vopnalöggjöf ríkisins, en Routh var handtekinn í fyrradag eftir að hann mundaði hríðskotariffil í nágrenni við Donald Trump, fv. forseta og frambjóðanda repúblikana.

Routh er ákærður fyrir að hafa verið með skotvopn í fórum sínum þrátt fyrir að vera á sakaskrá, og einnig fyrir að hafa afmáð skráningarnúmer riffilsins. Gert er ráð fyrir að fleiri ákærur muni fylgja í kjölfarið þegar rannsókn málsins lýkur, en Routh náði ekki að hleypa af skoti áður en lífverðir forsetans skutu að honum.