Banaslys varð á byggingarsvæði í Árborg í gær, en karlmaður um fimmtugt lést þegar hann féll niður af nýbyggingu í sveitarfélaginu.
Að sögn lögreglunnar á Suðurlandi barst tilkynning um slysið um þrjúleytið í gær og var maðurinn úrskurðaður látinn á vettvangi.
Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi rannsakar nú tildrög slyssins og var rannsókn þess á frumstigi í gær.