Nokkur hundruð einstaklingar tengjast skipulagðri brotastarfsemi á Íslandi með einum eða öðrum hætti. Þetta kemur fram í skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra frá árinu 2021 um skipulagða brotastarfsemi hér á landi
Undirheimar Lögregla veit af starfsemi skipulagðra glæpahópa hér á landi – innlendra, erlendra og blandaðra.
Undirheimar Lögregla veit af starfsemi skipulagðra glæpahópa hér á landi – innlendra, erlendra og blandaðra. — Morgunblaðið/Eggert

Ólafur Pálsson

olafur@mbl.is

Nokkur hundruð einstaklingar tengjast skipulagðri brotastarfsemi á Íslandi með einum eða öðrum hætti. Þetta kemur fram í skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra frá árinu 2021 um skipulagða brotastarfsemi hér á landi. Gera má ráð fyrir að nú, þremur árum síðar, sé þessi hópur orðinn enn stærri.

„Talið er líklegt að íslenskir, erlendir sem og fjölþjóðlegir glæpahópar muni leitast við að auka umsvif sín á Íslandi á komandi árum og einnig er raunhæfur möguleiki talinn á því að nýir hópar muni reyna að koma sér fyrir,“ segir í skýrslunni.

Þá er þar fjallað sérstaklega um starfandi glæpahópa á Íslandi sem tengdir eru ákveðnum þjóðarbrotum frá Mið-Austurlöndum og Suðaustur-Evrópu. Tiltækar upplýsingar bendi til að erlendir hópar séu

...