Úrslitaleikjum í bikarkeppnum handbolta og körfubolta hefur verið úthýst úr Laugardalshöll. Ekki er víst hvar verður spilað. Róbert Geir Gunnarsson formaður HSÍ segir í samtali við hlaðvarpið Handkastið að Íþróttabandalag Reykjavíkur hafi óskað…
Meistarar Keflavík er ríkjandi bikarmeistari kvenna í körfubolta.
Meistarar Keflavík er ríkjandi bikarmeistari kvenna í körfubolta. — Morgunblaðið/Óttar

Úrslitaleikjum í bikarkeppnum handbolta og körfubolta hefur verið úthýst úr Laugardalshöll. Ekki er víst hvar verður spilað. Róbert Geir Gunnarsson formaður HSÍ segir í samtali við hlaðvarpið Handkastið að Íþróttabandalag Reykjavíkur hafi óskað eftir því að bikarleikirnir verði leiknir annars staðar vegna æfingatíma barna í Laugardalshöll sem falla niður vegna viðburðanna. Mun útboð fara fram þar sem félög geta boðið í að halda viðburðina.