Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, hefur gert tvær breytingar á leikmannahópi sínum fyrir tvo vináttuleiki gegn Bandaríkjunum ytra síðar í mánuðinum. Ásdís Karen Halldórsdóttir, leikmaður Lilleström, og Heiða…
Nýliði Heiða Ragney Viðarsdóttir er í landsliðshópnum í fyrsta sinn.
Nýliði Heiða Ragney Viðarsdóttir er í landsliðshópnum í fyrsta sinn. — Morgunblaðið/Eggert

Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, hefur gert tvær breytingar á leikmannahópi sínum fyrir tvo vináttuleiki gegn Bandaríkjunum ytra síðar í mánuðinum. Ásdís Karen Halldórsdóttir, leikmaður Lilleström, og Heiða Ragney Viðarsdóttir, leikmaður Breiðabliks, koma inn í hópinn í stað Alexöndru Jóhannsdóttur hjá Fiorentina og Bryndísar Örnu Níelsdóttur hjá Växjö, sem eru meiddar.