Í dag getur heldur betur dregið til tíðinda í Bestu deild karla í fótbolta þegar fjórir af sex leikjum 26. og næstsíðustu umferðar deildarinnar fer fram. Úrslitin gætu nánast ráðist í einvígi Víkings og Breiðabliks um Íslandsmeistaratitilinn
Besta deildin
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Í dag getur heldur betur dregið til tíðinda í Bestu deild karla í fótbolta þegar fjórir af sex leikjum 26. og næstsíðustu umferðar deildarinnar fer fram.
Úrslitin gætu nánast ráðist í einvígi Víkings og Breiðabliks um Íslandsmeistaratitilinn.
Úrslitin gætu ráðist í baráttu Vals, Stjörnunnar og ÍA um eitt Evrópusæti.
Úrslitin gætu ráðist í fallbaráttu Vestra og HK.
En á hinn bóginn er alls ekki víst að úrslitin ráðist og bíða verði eftir lokaumferðinni um næstu helgi til að útkljá þessa baráttu.