Matthías Rúnar Viðarsson mynd­höggvari opnaði sýninguna Gjöf Njarðar gluggasýning í gær, föstudaginn 18. október, í Myrkraverk gallery, Skólavörðustíg 3
Verk Sjá má sýninguna í glugganum.
Verk Sjá má sýninguna í glugganum.

Matthías Rúnar Viðarsson mynd­höggvari opnaði sýninguna Gjöf Njarðar gluggasýning í gær, föstudaginn 18. október, í Myrkraverk gallery, Skólavörðustíg 3. Segir í tilkynningu að þar muni höggmyndum og bronsmyndum af refum og öðrum hrekkjalómum bregða fyrir. Þá sé efniviður höggmynda hans steinar; grágrýti, blágrýti, gabbró, granít, marmari og fleira. Sýningin stendur yfir til 31. október og er opin á fimmtudögum, ­
kl. 12-17, og eftir samkomulagi.