Íslands-, bikar- og deildarmeistarar Vals í handknattleik kvenna héldu áfram góðu gengi sínu í úrvalsdeildinni þegar liðið heimsótti nýliða Gróttu á Seltjarnarnes og hafði betur, 38:30, í sjöttu umferð deildarinnar í gærkvöldi.
Valur er áfram með fullt hús stiga, 12, á toppi deildarinnar eftir sex leiki. Grótta er í áttunda og neðsta sæti með tvö stig.
Þórey Anna Ásgeirsdóttir var markahæst í leiknum með 11 mörk fyrir Val. Sigríður Hauksdóttir skoraði þá sjö mörk úr jafnmörgum skotum. Lovísa Thompson og Elín Rósa Magnúsdóttir skoruðu sex mörk hvor.
Hafdís Renötudóttir varði 13 skot í marki Vals og var með tæplega 32 prósenta markvörslu.
Markahæst hjá Gróttu var Ída Margrét Stefánsdóttir með sex mörk.