Bæjarstjóri Reykjanesbæjar fundar með starfsmönnum Keflavíkurflugvallar

Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, hefur boðað starfsmenn Keflavíkurflugvallar til samráðs- og upplýsingafundar í Íþróttahúsinu við Sunnubraut í dag kl. 17:15. Á fundinum mun Árni ræða tillögur um aðgerðir vegna breytinga á varnarsamningi Bandaríkjamanna og Íslendinga í kjölfar flutnings herþotna og björgunarþyrla Bandaríkjahers frá Miðnesheiði. Tillögur að aðgerðum eru þríþættar og fela m.a. í sér aðstoð við núverandi starfsmenn, framkvæmdaáætlun um nútímavæðingu varna á Keflavíkurflugvelli og tíma nýrra tækifæra.

mbl.is