Undirrita samkomulag við Bandaríkin um varnarmál

Geir H. Haarde forsætisráðherra og Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra fara til …
Geir H. Haarde forsætisráðherra og Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra fara til Washington í dag til að undirrita samkomulag við Bandaríkjastjórn um varnarmál. mbl.is/RAX

Geir H. Haarde, forsætisráðherra og Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra fara til Washington í dag. Þar munu þau eiga fund með Condoleezzu Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna og undirrita samkomulag við Bandaríkin um varnarmál. Forsætisráðherra og utanríkisráðherra munu einnig eiga fund með Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra og Nicholas Burns aðstoðarutanríkisráðherra.

Utanríkisráðherra mun síðan heimsækja Alþjóðabankann og eiga fund um þróunarmál með Paul Wolfowitz, forseta bankans. Einnig mun ráðherrann eiga fundi með varaforseta og yfirmanni stefnumótunar bankans, James W. Adams, og með aðalfulltrúa Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í framkvæmdastjórn bankans, Svein Aass.

Þá mun utanríkisráðherra eiga fund með Susan C. Schwab, viðskiptafulltrúa Bandaríkjastjórnar, og ræða við hana um Doha viðskiptalotuna, mögulega fríverslun við Bandaríkin og fjárfestingasamning.

mbl.is