Fyrsti fundur Íslands og Bandaríkjanna um framtíð ratsjár- og loftvarnarkerfisins á Íslandi var haldinn í Brussel fyrr í dag. Fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu, að á fundinum hafi verið rætt fyrirkomulag og fjármögnun á kerfinu líkt og kveðið sé á um í samkomulagi Íslands og Bandaríkjanna, sem undirritað var í október á síðasta ári.
Þá segir ráðuneytið, að fundurinn hafi verið jákvæður og séu fljótlega fyrirhugaðar áframhaldandi viðræður.