Leyfi gefin út fyrir vísindaveiðar

Hrefna dregin inn fyrir borðstokkinn á hrefnubát.
Hrefna dregin inn fyrir borðstokkinn á hrefnubát. AP

Alþjóðahval­veiðiráðið seg­ir, að ís­lensk stjórn­völd hafi í gær gefið út fjög­ur veiðileyfi til vís­inda­veiða á hvöl­um á þessu ári. Gert er ráð fyr­ir að vís­inda­veiðin í ár fari ekki yfir 39 hrefn­ur en sam­kvæmt fjög­urra ára áætl­un, sem kynnt var árið 2003, átti að veiða 200 hrefn­ur. Búið er að veiða 161 hrefnu síðan.

Í til­kynn­ingu hval­veiðiráðsins seg­ir, að ís­lensk stjórn­völd taki fram, að veiðarn­ar séu háðar ströng­um skil­yrðum og þær teng­ist vís­inda­áætl­un, sem þegar hafi verið fjallað um í vís­inda­nefnd hval­veiðiráðsins.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina