Boðuð á fund forseta

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði Ólafi Ragnari Grímssyni í gær að …
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði Ólafi Ragnari Grímssyni í gær að hún væri reiðubúin að stuðla að myndun stjórnar Samfylkingarinnar með stuðningi fyrrum stjórnarandstöðu. mbl.is/Ómar

For­seti Íslands, Ólaf­ur Ragn­ar Gríms­son, hef­ur boðað Ingi­björgu Sól­rúnu Gísla­dótt­ur, formann Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, og Stein­grím J. Sig­fús­son, formann Vinstri grænna, á sinn fund á Bessa­stöðum klukk­an 11.

For­seti mun að lokn­um þeim fundi hugs­an­lega ræða við frétta­menn, að því er seg­ir í til­kynn­ingu.

Í gær ræddi for­seti Íslands við for­menn allra stjórn­mála­flokka á Alþingi eft­ir að Geir H. Haar­de, for­sæt­is­ráðherra, baðst lausn­ar. Líkt og fram kem­ur í Morg­un­blaðinu í dag stefn­ir allt í vinstri stjórn. 

Minni­hluta­stjórn Sam­fylk­ing­ar og Vinstri grænna (VG) verður að öll­um lík­ind­um mynduð í dag, að því er fram kem­ur í Morg­un­blaðinu í dag. „Það stefn­ir allt í vinstri stjórn,“ sagði viðmæl­andi Morg­un­blaðsins í Sam­fylk­ing­unni. Viðræður milli flokk­anna hóf­ust í gær­kvöldi en heim­ild­ir Morg­un­blaðsins herma að full­trú­ar þeirra hafi rætt óform­lega sam­an síðustu daga um mögu­legt sam­starf ef fyrra rík­is­stjórn­ar­sam­starf héldi ekki.

Þegar ljóst var að ríkisstjórnin væri sprungin stóð vilji VG fyrst til þjóðstjórnar. Fljótlega varð þó ljóst að slík stjórn var ekki líkleg þar sem Samfylkingin vildi að Jóhanna Sigurðardóttir leiddi hana, en Geir H. Haarde taldi að það ætti að vera fulltrúi stærsta stjórnmálaflokksins. Stjórn VG fundaði síðan í gærkvöldi um stjórnarmyndun og í kjölfarið var boðaður flokksráðsfundur klukkan 20.30 í kvöld, en hann er æðsta vald flokksins milli landsfunda. Á þeim fundi verður farið fram á samþykki fyrir nýrri ríkisstjórn.
mbl.is

Bloggað um frétt­ina