Inga Lára byrjar daginn á sexí morgunþeytingi

Inga Lára Ingadóttir.
Inga Lára Ingadóttir. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Inga Lára Ingadóttir er ein af þeim sem tekur þátt í átakinu, 10 árum yngri á 10 vikum. Á bloggsíðu sinni segir hún að átakið byrji vel. Hennar fyrsta verk var að henda út öllum sykri, hveiti, hvítum grjónum, kartöflum, pasta og fleiru.

Fyrstu vikuna passaði hún sig vel á því að borða á tveggja til þriggja tíma fresti svo hún myndi ekki detta í Nóa Siríus. Hér er hægt að fylgjast með Ingu Láru á blogginu.

Þorbjörg Hafsteinsdóttir höfundur bókarinnar, 10 árum yngri á 10 vikum, gefur uppskrift að sexí morgunþeytingi og Inga Lára segist hafa fengið sér hann og er mjög hrifin.

Nú þegar hafa birst baðfatamyndir af Ástu Svavarsdóttur, Írisi Arnlaugsdóttur og Ágústu Ósk Óskarsdóttur. Myndirnar af Önnu Dóru Guðmundsdóttur verða birtar síðar í dag. Smartland Mörtu Maríu mun fylgjast með stelpunum á meðan á átaki stendur.

mbl.is