Dagmar er einu kílói léttari eftir fyrstu viku

Dagmar Ásmundsdóttir.
Dagmar Ásmundsdóttir. mbl.is/Golli

Dagmar Ásmundsdóttir er ein af stelpunum í Stjörnuþjálfun. Átakið fer vel af stað og er hún einu kílói léttari. Á bloggi hennar kemur fram að hún hefði viljað sjá fleiri kíló fara þessa vikuna.

„Ein vika formlega búin í Stjörnuformi. Mér líður ofsalega vel en rúmt eitt kíló er farið, en ég hélt kannski að þau yrðu fleiri. En það er líka það sem ég hef verið að klikka á þegar ég hef tekið mig á sjálf í gegnum tíðina. Ég hef ekki þolinmæði fyrir vigtinni, það er alveg á hreinu að það er ekki jafnauðvelt að grennast og það var að fitna.“

„Æfingarnar hjá Önnu eru svakalegar, svitinn rennur af mér og ég fæ pínu performance-kvíða áður en ég fer og hugsa: Ég get ekki gert armbeygjur, ég get ekki gert planka lengi og ég get ekki hjólað standandi lengi en eftir smástund inni í sal með Önnu fer kvíðinn út um gluggann og hugsunin MITT ER VALIÐ verður allsráðandi.“

„Myndirnar úr undirfatamyndatökunni eru byrjaðar að koma inn og ég er alveg svakalega stressuð fyrir því. Ég fer varla í sund og ef ég geri það þá nota ég börnin mín sem skjöld. En þetta verður í síðasta skipti sem ég mun skammast mín fyrir líkama minn því eftir 12 vikur verð ég komin á það stig að ég mun halda áfram og verð mjög skömmu seinna farin að spranga um á bikiní í Laugardalslauginni.“

HÉR er hægt að lesa bloggið hennar Dagmarar.

mbl.is