Baðfatamyndirnar af Guðrúnu Björgu Pálsdóttur

Guðrún Björg er gift og starfar sem leikskólakennari. Hún á tvö börn, 18 ára stúlku og 13 ára dreng, sem fermist næsta vor. Aðalmarkmið hennar er að vera eins og Hollywood-stjarna í fermingunni.

Guðrún er sjö til tíu kílóum of þung og segist vilja losna við þau á meðan á átaki stendur. Hún hefur stundað líkamsrækt en segir að hún hafi gert það með misgóðum árangri.

„Mig langar að líta betur út, missa nokkur kíló en aðallega langar mig að styrkja mig. Mig langar að losna við bingó-vöðvana sem hreyfast í nokkrar mínútur eftir að ég hætti að vinka börnunum. Mig langar að geta gengið í sandölum og ermalausum bol. Ég missti mörg kíló fyrir nokkrum árum með því að borða 1200-1600 hitaeiningar á dag. Nú þarf ég hvatningu til að komast aftur þangað.“

mbl.is