Var gráti næst yfir baðfatamyndinni

Dagmar Ásmundsdóttir.
Dagmar Ásmundsdóttir. Eggert Jóhannesson

Dagmar Ásmundsdóttir, sem tekur þátt í Stjörnuþjálfun Smartlands og Hreyfingar, segist hafa verið gráti næst þegar hún sá baðfatamyndina af sér á vefnum. Á bloggi sínu segist Dagmar hafa verið í sjokki í nokkra klukkutíma en svo hafi hún séð að sér.

„Svo vaknaði ég og Ungfrú Jákvæð var búin að henda Ungfrú Æ hvað ég skammast mín út.“

„Vika 2 er langt komin, mér líður stórkostlega vel og nýi matseðillinn er alveg að virka fyrir mig. Fyndið að hugsa að ég hef oft heyrt þetta um að borða oft og litlar stærðir en aldrei prófað það fyrr en nú, en ALLA aðra mis heimskulega matar, djús og pillu kúra.“

HÉR er hægt að lesa bloggið í heild sinni.

Dagmar Ásmundsdóttir.
Dagmar Ásmundsdóttir. mbl.is/Golli
mbl.is