Dagmar léttist: 5 kíló fokin

Dagmar Ásmundsdóttir.
Dagmar Ásmundsdóttir. mbl.is/Golli

Dagmar Ásmundsdóttir í Stjörnuþjálfun Smartlands og Hreyfingar er búin að missa 5 kíló og er alsæl. Á bloggi sínu segir Dagmar að hún ætli aldrei að láta þessi kíló koma aftur.

„Það rignir upp í nefið á sumum ss mér því 5 KÍLÓ eru farin og fá ALDREI að koma aftur. Ég geri mér samt alveg grein fyrir því að það hægist örugglega á þessu hjá mér með tímanum en nú er bara markmiðið að láta það ekki gerast.“

„Það verður alltaf auðveldara og auðveldara að horfa framhjá freistingunum og maginn er orðin minni, sjálfstjórn veitir manni þvílíka vímu, af hverju vissi ég þetta ekki miklu fyrr.  Hverjir hafa ekki látið undan sjálfum sér og farið á KFC og svo liðið ömurlega eftir á, það hef ég gert milljón sinnum.“

„Það að fara sofa vitandi að maður er búin að gera sitt besta og finna muninn er best í heimi. það sem ég byrjaði líka að gera núna í þessu átaki var að byrja taka inn vítamín og mér líður mun betur ég er ss að taka inn meðal annars Spirulina og Astazan frá Lifestream og það er alveg mergjað hvað ég finn strax að vöðvarnir eru fljótari að jafna sig og orkan er meiri mæli eindregið með þessu.“

HÉR er hægt að lesa bloggið.

mbl.is