Útigangsmaður stal af öldruðum manni

Austurvöllur
Austurvöllur mbl.is/Hjörtur

Lögregla höfuðborgarsvæðisins handtók um miðjan dag útigangsmann sem stolið hafði peningum af öldruðum manni sem sat á bekk við Austurvöll. Áður en lögregla kom á vettvang kom starfsfólk nærliggjandi veitingastaðar gamla manninum til aðstoðar og fékk hann peninga sína til baka.

Útigangsmaðurinn er vistaður í fangageymslunni vegna ölvunar og vegna þjófnaðarins.

mbl.is