Flugsveit portúgalska flughersins hefur nú annast loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins við Ísland í tvær vikur. Um helgina verður skipt um áhöfn flughersins hér á landi.
Fram kemur á vef Landhelgisgæslunnar að gera megi ráð fyrir aðflugsæfingum inn á varaflugvellina, þ.e. Akureyri og Egilsstaði, næstkomandi mánudag og þriðjudag.
Fram kemur að verkefnið sé í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland og ráðgert sé að verkefnið verði unnið með sama fyrirkomulagi og áður og í samræmi við samninga sem í gildi eru. Því ljúki um miðjan september.
Líkt og greint hefur verið frá, taka á bilinu 60-70 liðsmenn portúgalska flughersins þátt í verkefninu á sex F-16 orrustuþotum.