Herjólfur fer fyrstu ferð dagsins frá Vestmannaeyjum til Landeyjahafnar, samkvæmt upplýsingum frá Gunnlaugi Grettissyni, rekstrarstjóra Herjólfs.
Staðfest brottför Herjólfs í fyrstu ferð dagsins er klukkan 8:00 frá Vestmannaeyjum og frá Landeyjahöfn kl. 10:00.
„Siglingar eru samkvæmt áætlun í dag en ef aðstæður breytast munum við senda út tilkynningu. Farþegar eru vinsamlegast beðnir að fylgjast með fréttum á herjolfur.is, á facebooksíðu Herjólfs og síðu 415 í textavarpi RÚV,“ segir Gunnlaugur.