Aflýsa óvissustigi

Í samráði við Veðurstofu Íslands og lögreglustjórana á Sauðárkróki, Akureyri og Húsavík hefur ríkislögreglustjóri ákveðið að aflýsa óvissuástandi vegna jarðskjálftahrinu úti fyrir Norðurlandi.

Óvissustigi vegna jarðskjálfta úti fyrir Norðurlandi var lýst yfir 24. október síðastliðinn. Aukið eftirlit var virkjað, íbúafundir haldnir og gerð viðbragðsáætlana vegna stórskjálfta hafin. Jarðskjálftavirknin hefur minnkað á síðustu vikum, bæði fjöldi skjálfta og styrkur en þó er virknin enn yfir meðallagi. Auk þess hafa forvarnir verið auknar og vitund fólks vegna hættu á stórum jarðskjálftum verið vakin.

Því ferli sem fer í gang vegna yfirlýsingar óvissustigs er lokið, en áfram verður fylgst með hættunni sem fylgir stórum jarðskjálftum. Sú spenna sem hefur hlaðist upp í jarðskjálftabeltinu fyrir norðan er enn fyrir hendi og því hvetja almannavarnir til árvekni og að almennu forvarnarstarfi verði haldið áfram, segir á vef almannavarna.

mbl.is