Kom ekki að barnastarfi í Áskirkju

Áskirkja
Áskirkja mbl.is/Sigurður Ægisson

Karl Vignir Þorsteinsson hefur aldrei annast um né komið á nokkurn hátt að starfi með börnum og unglingum í Áskirkju. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá kirkjunni.

„Í tilefni af umfjöllun Kastljóss um málefni Karls Vignis Þorsteinssonar og þátt hans sem sjálfboðaliði í safnaðarstarfi í Áskirkju í Reykjavík vilja sóknarprestur, sóknarnefnd og starfsfólk Áskirkju koma eftirfarandi á framfæri:

Karl Vignir hefur aldrei annast um né komið á nokkurn hátt að starfi með börnum og unglingum í Áskirkju.

Þátttaka hans í starfi sem sjálfboðaliði við Opið hús aldraðra hófst í kringum árið 2003 með aðstoð í eldhúsi. Hann varð síðar hluti af hópi sjálfboðaliða í heimsóknaþjónustu í söfnuðinum.

Í kjölfar umfjöllunar í fjölmiðlum árið 2007 um Karl Vigni var hann leystur frá störfum sem sjálfboðaliði og hefur síðan ekki gegnt neinum trúnaðarstörfum fyrir kirkjuna.

Á Evrópuári sjálfboðastarfs í kirkjunni 2011 var þjóðkirkjusöfnuðum boðið að veita sjálfboðaliðum viðurkenningu fyrir störf sín. Í Áskirkju voru 30 einstaklingum veittar slíkar viðurkenningar og var Karl Vignir í þeim hópi. Í ljósi þess sem fram hefur komið í umfjöllun Kastljóss nú, og Karl Vignir játaði þar á sig, er augljóst að sú ákvörðun var röng.

Hugur okkar er hjá þeim sem Karl Vignir hefur beitt ofbeldi,“ segir í yfirlýsingu frá Áskirkju.

mbl.is

Bloggað um fréttina