Áfram í haldi fyrir að brjóta á stúlkum

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Nú í morgun var í Héraðsdómi Vesturlands framlengt gæsluvarðhald yfir manni á fertugsaldri sem  grunaður er um kynferðisbrot gegn ungum stúlkum.  Hann hefur þegar sætt gæsluvarðhaldi í viku á grundvelli rannsóknarhagsmuna.  Grunur leikur á að maðurinn hafi brotið gegn tveimur stúlkum um árabil og að brotin hafi hafist um 2008 og staðið til ársins 2012. 

Rannsóknardeild lögreglunnar á Akranesi fer með rannsókn málsins en alls eru nú þar  til rannsóknar 5 kynferðisbrotamál.

mbl.is