Mætt í Playboy-myndatökuna

Arna Bára Karlsdóttir.
Arna Bára Karlsdóttir.

„Ég er núna á sjúklega flottu hóteli í Beverly Hills og gisti á svítu sem kostar næstum því 50.000 krónur nóttin. Þetta er allt í boði Playboy. Ég var sótt út á flugvöll á svaka flottum kagga og keyrð upp á hótel þegar ég lenti rétt eftir miðnætti að staðartíma. Svo var ég sótt kl. 07.30 um morguninn til að fara í heilsdagstöku uppi í stúdíói hjá þeim,“ segir Arna Bára.

Eftir tökurnar fer hún út að borða með varaforseta Playboy-tímaritsins. „Ætli það taki ekki við einhver skemmtun um kvöldið og svo daginn eftir fer ég í útsýnisferð um Los Angeles og við förum hring um Playboy-setrið. Ég er rosa spennt fyrir þessu öllu saman.“

Á heimleiðinni ætlar Arna Bára að stoppa í fjóra daga í Boston. „Ég ætla að dúlla mér aðeins áður en ég fer heim,“ segir hún alsæl.

Arna Bára Karlsdóttir.
Arna Bára Karlsdóttir.
Arna Bára Karlsdóttir.
Arna Bára Karlsdóttir.
mbl.is