Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst á ný mánudaginn 10. júní með komu flugsveitar ítalska flughersins. Alls munu um 150 liðsmenn ítalska flughersins taka þátt í verkefninu og koma þeir til landsins með sex F-2000-orrustuþotur, B767-eldsneytisvél og C130-birgðaflutningavél. Gera má ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og hugsanlega Egilsstöðum 12.-14. júní.
Þetta kemur fram í frétt á vef Landhelgisgæslunnar.
Verkefnið er í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland og er ráðgert að verkefnið verði framkvæmt með sama fyrirkomulagi og áður og í samræmi við samninga sem í gildi eru ljúki því í byrjun júlí.