Árvekni gegn heimilisofbeldi

mbl.is

Býrð þú við ofbeldi? er yfirskrift bæklings sem dreift hefur verið í öll hús á Suðurnesjum með upplýsingum um birtingarmyndir heimilisofbeldis og hvar sé hægt að leita sér hjálpar. Gerð bæklingsins er hluti af árvekniverkefni Suðurnesjavaktarinnar sem tengist jafnframt áætlun stjórnvalda um aðgerðir gegn ofbeldi í nánum samböndum. Frá þessu er sagt í frétt á vef velferðarráðuneytisins.

Öll sveitarfélög á Suðurnesjum standa saman að árvekniverkefninu gegn heimilisofbeldi sem hófst fyrir tilstilli Suðurnesjavaktarinnar. Verkefnishópur sem í sitja þrír félagsmálastjórar á svæðinu, fulltrúi lögregluembættisins á Suðurnesjum, fulltrúi heilbrigðisstofnunar Suðurnesja og verkefnisstjóri Suðurnesjavaktarinnar stóð fyrir málþingi síðastliðið haust fyrir fagfólk sem starfar meðal annars með þolendum og gerendum heimilisofbeldis.

Útbúin var áætlun um aðgerðir og er útgáfa bæklingsins hluti af þeim, að sögn Lovísu Lilliendahl, verkefnisstjóra Suðurnesjavaktarinnar. „Við töldum þörf á að taka saman öll úrræði sem eru til staðar og gera þau sýnileg í samfélaginu. Einnig er ætlunin að veita skólasamfélaginu meiri fræðslu varðandi þessi mál þar sem lögð verður áhersla á að þekkja einkenni barna sem búa við eða verða fyrir ofbeldi.  

Bæklingurinn er á íslensku, ensku og pólsku og á fyrst og fremst að vekja athygli á heimilisofbeldi og að allir geti orðið fyrir því. Við töldum einnig þörf á að brýna mikilvægi tilkynningaskyldunnar þegar börn eiga í hlut en í bæklingnum eru upplýsingar um hvert hægt er að snúa sér sé grunur um ofbeldi eða vanrækslu af einhverju tagi. Í bæklingnum koma fram upplýsingar um stofnanir á svæðinu sem hægt er að leita til vegna ofbeldis auk þeirra samtaka sem sérhæfa sig í því að aðstoða þá sem orðið hafa fyrir ofbeldi og sömuleiðis fyrir gerendur,“ segir Lovísa Lillendahl verkefnisstjóri.    

Hér má lesa bæklinginn.

mbl.is