Borgarstjórn „vegur að atvinnustarfsemi“

Reykjavíkurflugvöllur.
Reykjavíkurflugvöllur. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Félag íslenskra atvinnuflugmanna segist undrast þá stefnu borgarstjórnar Reykjavíkur að vega að atvinnustarfsemi og störfum í Reykjavík, bæði vegna félagsmanna sinna, sem og annarra. „Á þetta ekki síst við í ljósi þess efnahagsástands sem við búum við. [...] Bein afleiðing þess er aukið atvinnuleysi og minnkandi tekjur.“

Ástæða þess að FÍA sendir frá sér yfirlýsingu er umræða um Reykjavíkurflugvöll og nýtt aðalskipulag Reykjavíkur en í því er gert ráð fyrir að annarri aðalflugbraut vallarins verði lokað. „Svo virðist vera að stefna borgarstjórnar Reykjavíkur sé að gera Reykjavíkurflugvöll óstarfhæfan, án þess að hafa haldbæra lausn á því vandamáli. Ekki hefur verið tekið tillit til álits fagaðila í þessu umfangsmikla máli þrátt fyrir skýrslur og ráðstefnur um málið.“

FÍA segir að lokun Reykjavíkurflugvallar án þess að hafa annan sambærilegan flugvöll í hans stað sé óábyrgt. „FÍA undrast að enn og aftur beinist umræðan að flugvelli á Hólmsheiði sem fýsilegum kosti, þrátt fyrir að fram hafi komið upplýsingar um að Hólmsheiði uppfylli alls ekki kröfur sem gerðar eru til flugvallarstæðis. Þar má nefna skýrslu Isavia um hugsanlegan flutning vallarins á Hólmsheiði.“

Ennfremur bendir FÍA á að Reykjavíkurflugvöllur gegni mikilvægu hlutverki sem varavöllur fyrir Keflavíkurflugvöll og að sama skapi gegni Keflavíkurflugvöllur mikilvægu hlutverki sem varavöllur fyrir Reykjavíkurflugvöll. Þetta segir FÍA að sé forsenda fyrir innanlandsflugi um Reykjavíkurflugvöll.

„Ljóst er að ef innanlandsflug og sjúkraflug, eins og við þekkjum í dag, eigi að vera til staðar í framtíðinni, þarf til þess flugvöll og er enginn annar hentugri en sá sem fyrir er í Vatnsmýrinni, enn sem komið er. Einnig vill FÍA minna á að Reykjavíkurflugvöllur gegnir mikilvægu hlutverki í almannavörnum Íslands.“

mbl.is