Einskorðað við vef Vodafone

AFP

Árás á vef Vodafone hefur verið kærð til lögreglu en árásin hafði engin áhrif á fjarskiptakerfi Vodafone heldur einskorðaðist við vef Vodafone. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Vodafone.

Brotist inn á vef Vodafone aðfararnótt 30. nóvember sl. Búið er að stöðva árásina og unnið er að nánari rannsókn á málinu.

„Í árásinni var upplýsingunum um SMS sem send voru í gegnum vefsíðu Vodafone stolið ásamt lykilorðum að Mínum síðum á Vodafone.is. Ekki var um að ræða hefðbundin SMS milli símtækja. Engum gögnum úr fjarskiptakerfum fyrirtækisins, svo sem upplýsingum um símtöl, SMS milli símtækja, tölvupósti eða öðrum fjarskiptagögnum var stolið.

Vodafone mun í framhaldinu endurskoða öll öryggiskerfi fyrirtækisins til að koma í veg fyrir frekari árásir,“ segir í yfirlýsingu frá Vodafone.

Hér er hægt að skoða hvort upplýsingar hafi lekið út

Algengar spurningar sem hafa borist til Vodafone í dag og svör við þeim:

Eru SMS sem ég sendi úr símanum mínum á internetinu?

SVAR: Nei. Gögnin sem um ræðir eru SMS sem send hafa verið í gegnum vef Vodafone

Eru bankaupplýsingarnar mínar eða kreditkortanúmer á netinu? Þarf ég að loka kreditkortinu mínu?

SVAR: Vodafone hefur engar upplýsingar sem benda til þess að kreditkortaupplýsingar hafi lekið nema í þeim tilfellum sem viðskiptavinir sendu slíkar upplýsingar sem texta í vefSMS.

Þarf ég að breyta lykilorðinu mínu inn á heimabankann?

SVAR: Ef þú ert með mínar síður hjá Vodafone og notar sama lykilorð þar og inn á heimabankann þinn mælum við hiklaust með því að breyta lykilorðinu strax sem og á öðrum síðum sem þú notar sama lykilorð inn á.

Hvað með vefi sem eru hýstir hjá Vodafone? Urðu þeir fyrir árás, eru þeir öruggir og þarf að breyta lykilorði á vefumsýslunni?

SVAR: Nei, vefir sem hýstir eru hjá Vodafone urðu ekki fyrir árás

Hvernig kemst ég í tölvupóstinn minn?

SVAR: Ekki þarf að fara inn á vodafone.is til að komast í tölvupóstinn. Hægt er að fara inn á www.internet.is

Var farið inn á póstinn minn sem hýstur er hjá Vodafone

SVAR: Nei, það var ekki gert.

Komst hakkarinn yfir lykilorðið á routernum mínum?

SVAR: Nei

Hefur árásin einhver áhrif á farsímann minn, netið eða sjónvarp?

SVAR: Árásin hefur ekki áhrif á fjarskipti einstaklinga og fyrirtækja, hvorki netnotkun, farsímanotkun eða heimasímanotkun.

Hvernig ætlið þið að bregðast við dreifingu á gögnum úr innbroti hakkarans?

SVAR: Innbrot á vef Vodafone í nótt verður kært til lögreglu. Yfirmenn Vodafone sitja nú á fundi með lögreglu vegna málsins. Öll notkun og birting á stolnu gögnunum er ólögleg og alvarlegt brot á friðhelgi fólks.

Er verið að hlera símann minn?

SVAR: Nei

Fóru út upplýsingar um SMS frá bönkunum?

SVAR: Nei

Er mér óhætt að fara á internetið?

SVAR: Já

Er mér óhætt að fara inn á heimabankann minn?

SVAR: Já

mbl.is