Verð á hlutabréfum í Fjarskiptum hf., móðurfélagi Vodafone hafa tekið mikla dýfu í fyrstu viðskiptum dagsins og hafa þau farið niður um tæplega 13%. Viðskipti með bréf fyrirtækisins nema rúmlega 40 milljónum það sem af er degi. Bréfin standa nú á genginu 26.65 krónum á hlut, en þau voru 29,75 krónur á hlut við lok viðskipta á föstudaginn. Það er ljóst að árásin á fyrirtækið um helgina og leki þeirra persónugagna sem þar var stolið hefur áhrif á markaðinn.
Viðskipti með önnur hlutabréf í Kauphöllinni fara aftur á móti heldur rólega af stað.