Adolf ekki lengi án atvinnu

Adolf Ingi
Adolf Ingi mbl.is

Íþróttafréttamaðurinn Adolf Ingi Erlingsson hefur verið fenginn til að lýsa leikjum íslenska karlalandsliðsins í handknattleik á undirbúningsmóti fyrir Evrópumótið sem fram fer síðar í mánuðinum. Undirbúningsmótið sem fram fer um helgina verður sýnt á nýrri íþróttarás, Skjásport.

Sem kunnugt er var Adolf Inga sagt upp störfum hjá Ríkisútvarpinu í fjöldauppsögnum í nóvember síðastliðnum. Hann hafði unnið hjá Ríkisútvarpinu í 22 ár. Rætt er við hann í Fréttatímanum sem kemur út á morgun. Hann segir skemmtilegt að það skuli vera eftirspurn eftir starfskröftum hans, jafnvel þó að það verði aðeins þetta eina undirbúningsmót.

mbl.is