„Mun gera góða hluti hjá RÚV“

Samstarfsfólk Magnúsar Geirs Þórðarsonar í Borgarleikhúsinu er sannfært um að hann sé gæddur öllum þeim kostum sem útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins þurfi að búa yfir. Sem leikhússtjóri og á Akureyri hefur honum tekist að auka aðsókn og áhuga á leikhúsinu auk þess að skapa afburða góðan starfsanda.

mbl.is ræddi við leikhúsfólkið Guðjón Davíð Karlsson, Berg Þór Ingólfsson og Kristínu Þóru Haraldsdóttur auk annarra um nýjan útvarpsstjóra.

mbl.is