Greiða atkvæði um sáttatillögu ríkissáttasemjara

Ríkissáttasemjari lagði fram sáttatillögu, svokallaða innanhússtillögu, í gær til þeirra …
Ríkissáttasemjari lagði fram sáttatillögu, svokallaða innanhússtillögu, í gær til þeirra félaga sem felldu samninginn. Það var einróma samþykkt á fundi samninganefndar Flóafélaganna senda samninginn í atkvæðagreiðslu. mbl.is/Golli

Samninganefnd Flóafélaganna - Eflingar, Hlífar í Hafnarfirði og VSFK í Keflavík - samþykkti í gærkvöldi með nær einróma niðurstöðu að senda nýja sáttatillögu ríkissáttasemjara, sem hann lagði fram síðdegis í gær til afgreiðslu félagsmanna á almennum markaði.

Samningurinn er afturvirkur frá og með 1. febrúar 2014. Jafnframt  felur hann í sér eingreiðslu upp á 14.600 kr. auk hækkana á orlofs- og desemberuppbótum samtals um 32.300 kr. 

Þetta kemur fram á heimasíðu Eflingar.
 
„Í gær, fimmtudag, lagði ríkissáttasemjari fram sáttatillögu, svokallaða innanhússtillögu til þeirra félaga sem felldu samninginn og höfðu í gærkvöldi flest þeirra þegar samþykkt að senda samninginn í atkvæðagreiðslu en Flóafélögin eru með mjög fjölmenna samninganefnd sem eins og fyrr segir var kölluð saman í gærkvöldi til að fjalla um sáttatilboðið og taka afstöðu til þess hvort ætti að senda það í atkvæðagreiðslu. Það var nær einróma niðurstaða að halda áfram á sömu forsendum og einróma samþykkt að senda samninginn þannig breyttan í atkvæðagreiðslu,“ segir í frétt á vef Eflingar.

„Ekki hefur komið fram ennþá með óyggjandi hætti hvort stjórnvöld gefa út yfirlýsingu um aðgerðir í útgjöldum vegna heilbrigðismála nánar tiltekið í gjaldskrám vegna læknaþjónustu  og þjónustu á heilsugæslustöðvum. Líkur voru taldar á því í gærkvöldi eftir viðræður við ráðherra. 

Þegar er hafin vinna við undirbúning atkvæðagreiðslu Flóafélaganna og verða atkvæðaseðlar sendir út eftir helgi  en tilkynna skal niðurstöðu í atkvæðagreiðslu Flóans fyrir kl. 16.00 föstudaginn 7. mars nk.,“ segir ennfremur.

mbl.is