Félagsmenn VM samþykktu samningana

Kjarasamningar Félags vélstjóra og málmtæknimanna við Samtök atvinnulífsins, sem undirritaðir voru í febrúar, voru samþykktir í allsherjaratkvæðagreiðslu. Um var að ræða kjarasamninga VM vegna starfa félagsmanna á almennum vinnumarkaði í landi, þ.e. málmiðnaðarmanna, netagerðarmanna og vélstjóra, auk þeirra sem starfa á samningum félagsins við orkufyrirtækin. Kosið var sameiginlega um samningana og lauk atkvæðagreiðslu kl. 8:00 föstudaginn 7. mars.

Á kjörskrá voru 1.750 og 369, eða 21,1%, tóku þátt í kosningunni.

Já sögðu 265, eða 71,8% greiddra atkvæða. 

Nei sögðu 100, eða 27,1% greiddra atkvæða og fjórir sátu hjá.

mbl.is