Flóafélögin samþykktu samninginn

Höfuðstöðvar ASÍ og Eflingar.
Höfuðstöðvar ASÍ og Eflingar. mbl.is/Eggert

Atkvæði voru í dag talin í atkvæðagreiðslu Flóafélaganna, Eflingar, Hlífar og VSFK um sáttatillögu ríkissáttasemjara um kjarasamning þessara aðila við SA á almennum markaði sem undirritaður var hinn 20. febrúar sl. Sáttatillagan var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta greiddra atkvæða eða um 80,5% atkvæða. Þetta þýðir að kjarasamningur er kominn á milli aðila og er afturvirkur frá 1. febrúar sl., segir í fréttatilkynningu.

Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar voru eftirfarandi:

Já sögðu 2.149 eða 80,5%.

Nei sögðu 494 eða 18,5%.

Auðir seðlar og ógildir voru 25.

Samkvæmt þessum tölum er sáttatillagan samþykkt. Á kjörskrá voru alls 20.153 félagsmenn. Atkvæði greiddu 2.668 félagsmenn eða 13,23%.

Þetta þýðir að kjarasamningurinn á almennum markaði hefur tekið gildi hjá þessum stéttarfélögum því sáttatillagan var afturvirk til 1. febrúar sl.

mbl.is