BSRB og Samninganefnd ríkisins (SNR) undirrituðu í gærkvöld samkomulag í húsnæði ríkissáttasemjara. Samkomulagið fjallar um þau sameiginlegu mál sem aðildarfélög BSRB höfðu falið bandalaginu að semja um.
Þar er m.a. fjallað um forsendur kjarasamninga og bætt vinnubrögð við gerð kjarasamninga. Þá eru aðilar sammála um að farið verði í að þróa aðferðafræði við að meta laun og launaþróun á opinberum og almennum vinnumarkaði, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.
Einnig er fjallað sérstaklega um endurskoðun á málefnum vaktavinnufólks í samkomulaginu. Er þar sérstaklega átt við þá sem vinna styttri vaktir, oft nefndar stubbavaktir, og eru jafnvel kallaðir til starfa oftar en einu sinni á sólarhring. Aðilar samkomulagsins eru sammála um að slíkt sé íþyngjandi fyrir starfsmenn umfram það sem almennt gerist. Samkomulagið felur því í sér að á samningstímanum muni aðilar þess kanna forsendur hjá þeim stofnunum sem um ræðir og leita leiða til úrbóta.
Í kjölfar þess að BSRB kláraði samkomulagið við SNR skrifaði SFR, fjölmennasta aðildarfélag BSRB, undir kjarasamning við ríkið. Kjarasamningurinn sem SFR og SNR undirrituðu í gærkvöld nær til um 3500 félagsmanna SFR sem starfa hjá ríkinu. Samningurinn er að mestu hliðstæður þeim samningum sem undirritaðir hafa verið á síðustu misserum en helstu atriði í nýjum samningi SFR eru:
Samningurinn verður kynntur félagsmönnum á næstu dögum og í kjölfarið borin undir atkvæði.
Síðar í dag eiga fleiri aðildarfélög BSRB fundi með samninganefnd ríkisins. „Fastlega má búast við að það þokist í átt til undirritunar nýrra kjarasamninga hjá fleiri aðildarfélögum BSRB á næstu dögum,“ segir í fréttatilkynningunni. Þegar hefur Póstmannafélag Íslands samþykkt nýjan kjarasamning við Íslandspóst. Þá mun Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, sem nýverið hafnaði í atkvæðagreiðslu samningum við Reykjavíkurborg, funda á ný með samninganefnd borgarinnar um helgina til að leggja drög að nýju samkomulagi.